25/05/08

Vá, langt síðan maður bloggaði síðast :| Úps, hehe =P

 En jæja, nú erum við næstum búnir með þetta, þurfum bara að klára svona eins og eitt myndbrot og svo klippa allt heila klabbið. Ég hef fulla trú á því að Unnar og Elías ná þessu öllu á meðan ég verð í burtu =)

Fjórði dagur.

Vegna veikinda í fjölskyldu eins úr hópnum fórum við ekki uppí Hvassó að klára There will be Blood senuna, en í staðinn byrjuðum við að finna hljóðin sem við þurfum á netinu. Ætli við klárum það ekki á mánudaginn, af því Marteinn (kennarinn uppí Hvassó sem hjálpar okkur með þetta) verður ekki á staðnum þá.

Þriðji dagur.

Við vorum ekki nógu duglegir að blogga í gær, en nú skal bætt úr því.

Í dag rákum við nokkur smiðshögg á There will be Blood atriðið, og held ég að það sé að verða nokkuð gott. Þó verður morgundeginum líklegast líka eytt í sama atriðið: start-stop animation úr leir er mun erfiðari en ég (Siggi) hélt.

Í gær (nú bæti ég upp fyrir bloggleysi gærdagsins) byrjuðum við á því að leira persónurnar fyrir There will be Blood, og byrjuðum aðeins að taka upp. Enn er þó nokkur vinna eftir, sérstaklega að samræma hljóðið - sem verður tekið úr myndinni - og hreyfingar leirkallanna okkar.


Ákvarðanir teknar

13/05/08. Í dag ákváðum við nákvæmlega hvað við ætlum að gera úr verkefninu (parody úr nokkrum sér-völdum myndum (Titanic, There will be Blood, Snakes on a Plane, Harry Potter og...eitthver sem ég man ekki í augnablikinu)). 

Ó, og þetta verður úr leir :D


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband